30.09.2012
Í hádeginu síðastliðinn föstudag skrifuðu þrjár ungar heimastelpur undir samninga við knattspyrnudeild Selfoss. Það voru þær Karen Inga Bergsdóttir, Franziska Jóney Pálsdóttir og Íris Sverrisdóttir.
30.09.2012
Frjálsíþróttafólk á HSK-svæðinu hélt sitt árlega lokahóf í Tíbrá á Selfossi laugardagskvöldið 22. september sl. Þar var keppnistímabilið 2012 gert upp í máli, myndum, viðurkenningum, hlátrasköllum og hitaeiningum.
29.09.2012
Fyrsti leikur vetrarins var gegn Gróttu á Seltjarnarnesi. Fyrirfram var búist við hörkuleik og svo varð raunin. Leikurinn byrjaði rólega og kom fyrsta mark leiksins ekki fyrr en á fjórðu mínútu.
28.09.2012
Erna Guðjónsdóttir og Katrín Rúnarsdóttir, leikmenn meistaraflokks kvenna, skrifuðu í gær undir samning við Knattspyrnudeild Selfoss.
27.09.2012
Upphitun fyrir fyrsta leik Selfoss í 1.deildinni lýkur með viðtali við Einar Pétur Pétursson, sem kom í sumar á láni frá uppeldisfélaginu sínu Haukum.
27.09.2012
Fyrirliði Selfyssinga Hörður Gunnar Bjarnarson svaraði nokkrum spurningum fyrir heimasíðuna um komandi vetur og fyrsta leik vetrarins annað kvöld gegn Gróttu kl 19:30 á Seltjarnanesi. Hvernig leggst komandi vetur í þig?Veturinn leggst bara vel í mig, undirbúningstímabilið hefur gengið vel og okkur hlakkar öllum mikið til að komast af stað í deildinni.
27.09.2012
Selfyssingar tefldu fram harðsnúnu liði á WOW Íslandsmótinu í skák sem fram fór á Hlíðarenda nú í september. Auðvitað lá fyrir að róðurinn yrði þungur enda flestir af bestu skákmönnum þjóðarinnar á staðnum að freista þess að hafa sigur í mótinu og ekki voru verðlaun skorin við nögl, utanlandsferðir fyrir alla keppendur sigurliðs.
26.09.2012
Nú eru 2 dagar í fyrsta leik Selfoss í 1.deildinni og heldur heimasíðan áfram að hita upp fyrir veturinn og leikinn með viðtölum. Næstur í röðinni er Einar Guðmundsson yfirþjálfari Selfoss.Hvernig leggst komandi vetur í þig?Mér list vel á þetta, ég held að liðið sé vel undirbúið, flestir hafi æft vel og hópurinn sé ágætleg mannaður.Fyrsti leikur vetrarins er gegn Gróttu á nesinu, hvernig meturðu möguleikana?Ég held að þetta verði 50-50 leikur, þar sem sigurinn getur fallið hvoru megin sem er.Í ný útkomni spá er Selfoss spáð 4-5 sæti, er það raunhæf spá ?Ég var mjög hissa þegar ég sá spánna, ég tel okkur t.d.
25.09.2012
Heimasíðan heldur áfram að hita upp fyrir fyrsta leik Selfoss í 1.deildinni. Stefán Árnason þjálfari 3. og 4. flokks karla svaraði nokkrum spurningum um veturinn. Hvernig leggst komandi vetur í þig?Veturinn leggst mjög vel í mig.
24.09.2012
Uppskeruhátíð yngri flokka knattspyrnudeildar var haldin síðastliðinn laugardag. Færa þurfti hátíðina inn í Iðu vegna vætu. Óskar Sigurðsson, formaður deildarinnar, fór yfir árangur sumarstarfsins og á eftir voru afhentar viðurkenningar í öllum flokkum fyrir góðan árangur.