Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir er í 16 manna lokahópi U-20 ára landsliðs kvenna. Hanna er ekki eini Selfyssingurinn í liðinum því að Kristrún Steinþórsdóttir leikmaður danska liðsins Aarhus er einnig í hópnum.
Um páskana, 18.-20.apríl, leikur liðið hér á Íslandi í undanriðli HM ásamt Úkraínu, Rúmeníu og Slóveníu. Tvö efstu liðin í riðlinum tryggja sér sæti í lokakeppni HM sem fram fer í Króatíu í sumar.
Dagskráin liðsins er eftirfarandi:
18. apríl kl. 14 Ísland - Úkraína
19. apríl kl. 14 Ísland - Rúmenía
20. apríl kl. 16 Ísland - Slóvenía
Hópurinn kemur saman til æfinga 24. mars.
Sjá tilkynningu á heimasíðu HSÍ.