09.04.2018
Það er í nógu að snúast hjá Selfyssku landsliðsfólki í handbolta eins og svo oft áður. Sex Selfyssingar léku með A-landsliði karla um helgina í Gulldeildinni, æfingamóti sem haldið var í Noregi.
06.04.2018
Laugardaginn 10. mars sl. fór fram Bikarkeppni Frjálsíþróttasambands Íslands í fullorðinsflokki, í Kaplakrika. Keppt var í átta greinum í karla og kvennaflokki.
05.04.2018
Anna María Friðgeirsdóttir, fyrirliði kvennaliðs Selfoss, hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Selfoss til tveggja ára. Anna María, sem er 26 ára gömul, er leikjahæsta knattspyrnukona félagsins frá upphafi en hún hefur leikið 215 meistaraflokksleiki fyrir Selfoss frá árinu 2009, þar af 80 í Pepsi-deildinni. Anna María tók við fyrirliðabandinu á Selfossi á síðasta keppnistímabili þegar Selfoss lék í 1.
05.04.2018
Landsbankinn og Handknattleiksdeild Umf. Selfoss framlengdu á dögunum samstarfssamning sinn um rúmlega eitt ár. Markmið samningsins er að efla íþrótta- og forvarnarstarf handknattleiksdeildar Selfoss. Landsbankinn hefur verið aðalstyrktaraðili handknattleiksdeildarinnar um árabil og er deildin gríðarlega ánægð með að samninginn og vonar að samstarfið verði farsælt líkt og síðustu ár. Mynd: Einar Sindri Ólafsson og Þorsteinn Rúnar Ásgeirsson frá handknattleiksdeild Selfoss og Gunnlaugur Sveinsson og Helga Guðmundsdóttir frá Landsbankanum á Selfossi.
04.04.2018
Eins og undanfarin ár verður Íþrótta- og útivistarklúbburinn, sem er fyrir öll börn fædd 2008-2012, í fullum gangi í sumar. Klúbburinn er starfræktur á vegum Ungmennafélags Selfoss í góðu samstarfi við Sveitarfélagið Árborg.Klúbburinn býður upp á fjölbreytt og skemmtileg sumarnámskeið fyrir hressa krakka. Markmið námskeiðanna er fjölbreytileiki og skemmtileg hreyfing með mikilli útiveru og íþróttum í góðum félagsskap.
03.04.2018
Knattspyrnudeild Selfoss hefur gert eins árs samning við markvörðinn Emmu Higgins, sem kemur til félagsins frá Grindavík. Emma er reyndur markvörður en hún er einnig markvörður Norður-Írska landsliðsins.
03.04.2018
U-16 ára landslið Íslands lenti í öðru sæti á Vrilittos Cup í Aþenu um helgina eftir æsispennandi úrslitaleik gegn Króötum. Þeir Tryggvi Þórisson, Ísak Gústafsson og Reynir Freyr Sveinsson eru allir í lykilhlutverkum í liðinu og stóðu sig gríðarlega vel, Reynir Freyr skoraði 11 mörk, Ísak 9 og Tryggvi 6 mörk.Einnig er Örn Þrastarson aðstoðarþjálfari liðsins og Mílan-drengurinn Ketill Heiðar Hauksson sjúkraþjálfari liðsins.
Við óskum strákunum að sjálfsögðu til hamingju með silfrið
Úrslit leikjanna
Ísland 26 - 28 Bosnía & Hersegóvína
Ísland 28 - 21 Rúmenía
Ísland 26 - 25 Króatía
Undanúrslit: Ísland 25 - 24 Ísrael
Úrslit: Ísland 20 - 21 Króatía.