image
Þriðji flokkur kvenna og þriðji flokkur karla í handbolta eru báðir komnir í fjögurra liða úrslit í bikarkeppninni. Stelpurnar halda til Vestmannaeyja á morgun fimmtudag en þær eiga erfiðan leik fyrir höndum þar. Strákarnir í þriðja flokki eiga svo leik á móti sprækum Haukastrákum, sunnudaginn 16. febrúar klukkan 15:40, samkvæmt heimasíðu HSÍ. Sá leikur fer fram í Hafnafirði. Glæsilegur árangur hjá ungu og efnilegu handboltafólki. Fólk er hvatt til að mæta á þessa leiki og fylgjast með framtíðar handboltafólki Selfoss. Úrslitaleikirnir verða svo sunnudaginn 2. mars í Laugardalshöllinni, en þangað er stefnan að sjálfsögðu sett.
Baráttukveðjur og áfram Selfoss!
Meðfylgjandi myndir tók Inga Heiða Heimisdóttir af 3.fl.kvenna og 3.fl.karla