Frjálsar - MÍ 11-14 Hópmynd
HSK/Selfoss varð um seinustu helgi Íslandsmeistari í frjálsum íþróttum 11-14 ára innanhúss. Liðið var með 1.012,5 stig en næsta félag, FH, fékk 568 stig.
Á Meistaramóti Íslands er keppt í átta flokkum þ.e. 11, 12, 13 og 14 ára hjá stúlkum og piltum. HSK/Selfoss varð Íslandmeistari í fimm flokkum af átta. Í flokkum 12 ára stúlkna og pilta urðum við í öðru sæti og í flokki 13 ára pilta urðum við í þriðja sæti, tveimur stigum á eftir öðru sætinu.
Öll úrslit mótsins má finna á Þór mótaforriti FRÍ.
Selfyssingar voru mjög atkvæðamiklir á mótinu og unnu til 11 gullverðlauna, 10 silfurverðlauna og 12 bronsverðlauna.
Gullverðlaun og Íslandsmeistaratitil hlutu:
Daði Kolviður Einarsson, 60 metra hlaup pilta 11 ára - 9,46 sek
Daði Kolviður Einarsson, 600 metra hlaup pilta 11 ára - 2:01,27 mín
Daði Kolviður Einarsson, Langstökk pilta 11 ára3,79 m
Hreimur Karlsson, Hástökk pilta 11 ára - 1,19 m
Sæþór Atlason, Kúluvarp (3,0 kg) pilta 12 ára - 8,52 m
Hildur Helga Einarsdóttir, Kúluvarp (3,0 kg) stúlkna 14 ára - 10,53 m
Hákon Birkir Grétarsson, 60 metra hlaup pilta 14 ára - 7,92 sek
Hákon Birkir Grétarsson, 60 metra grind pilta 14 ára - 9,34 sek
Tryggvi Þórisson, Hástökk pilta 14 ára1,64 m
A-sveit HSK/Selfoss, 4x200 m boðhlaup pilta 11 ára - 2:17,42 mín
A-sveit HSK/Selfoss, 4x200 metra boðhlaup pilta 14 ára - 1:47,88 mín
Silfurverðlaun hlutu:
Hrefna Sif Jónasdóttir, 600 m hlaup s 12 ára - 2:00,03 mín
Eva María Baldursdóttir, Hástökk s 13 ára - 1,46 m
Bríet Bragadóttir, Langstökk 2 14 ára - 4,66 m
Kolbeinn Loftsson, Hástökk p 14 - 1,61 m
Dagur Fannar Einarsson, 800 m hlaup p 14 ára - 2:21,69 mín
Hákon Birkir Grétarsson, Langstökk p 14 ára - 5,12 m
Hákon Birkir Grétarsson, Kúluvarp (4 kg) p 14 ára - 10,83 m
A-sveit HSK/Selfoss, 4x200 m boðhlaup p 12 ára - 2:07,56 mín
A-sveit HSK/Selfoss, 4x200 m boðhlaup s 13 ára - 2:02,34 mín
B-sveit HSK/Selfoss, 4x200 m boðhlaup p 14 ára - 1:55,68 mín
Bronsverðlaun hlutu:
Benjamín Guðnason, Kúluvarp (3,0 kg) p 12 ára - 7,88 m
Bríet Bragadóttir, 800 m hlaup s 14 - 2:38,90 mín
Valgerður Einarsdóttir, Hástökk s 14 ára - 1,49 m
Dagur Fannar Einarsson, 60 m hlaup p 14 ára - 8,18 sek
Kolbeinn Loftsson, 60m grind p 14 ára - 9,53 sek
Kolbeinn Loftsson, Langstökk p 14 ára - 4,86 m
Hákon Birkir Grétarsson, Hástökk p 14 ára - 1,61 m
A-sveit HSK/Selfoss, 4x200 m boðhlaup s 11 ára - 2:18,78 mín
B-sveit HSK/Selfoss, 4x200 m boðhlaup p 11 ára - 2:29,12 mín
A-sveit HSK/Selfoss, 4x200 m boðhlaup s 12 ára - 2:13,09 mín
B-sveit HSK/Selfoss, 4x200 m boðhlaup s 13 ára - 2:10,30 mín
A-sveit HSK/Selfoss, 4x200 m boðhlaup s 14 ára - 1:55,49 mín
HSK metin í þessum flokkum eru orðin ansi góð en þrátt fyrir það settu krakkarnir 3 ný HSK met um helgina.
Hákon Birkir Grétarsson, 14 ára bætti 3 ára gamalt met Styrmis Dan í 60m grindahlaupi á 9,37 sek
Dagur Fannar Einarsson, 14 ára bætti 2 ára gamalt met Þormars Elvarssonar en hann hljóp á 2:21,67 mín
A-sveit HSK/Selfoss, piltar 14 ára bætti eigið met í 4x200 metra boðhlaupi á 1:47,88 mín. Hákon Birkir, Dagur Fannar, Kolbeinn og Jónas skipuðu metsveitina.
Frábær árangur hjá liðinu og spennandi ár framundan.
---
Ljósmyndir: Umf. Selfoss/Guðrún Tryggvadóttir og Thelma Björk Einarsdóttir.