Smáþjóðaleikarnir þarfnast framlags sjálfboðaliða. Vilt þú taka þátt sem sjálfboðaliði á Smáþjóðaleikunum í Reykjavík dagana 1.-6. júní 2015. Hefur þú áhuga á að kynnast jákvæðu fólki í skemmtilegu umhverfi, fylgjast með besta íþróttafólki Evrópu og jafnvel sjá ný íþróttamet slegin?
Smáþjóðaleikarnir eru einstakur viðburður í íslenskri íþróttasögu og því hvetur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands alla sem hafa áhuga á að taka þátt í leikunum að skrá sig á heimasíðunni www.iceland2015.is.
Á Smáþjóðaleikunum eru fjölbreytt verkefni sem reyna á mismunandi hæfileika og kunnáttu fyrir alla sjálfboðaliða 18 ára og eldri. Sjálfboðaliðar fá til eigna glæsilegan fatapakka sem ÍSÍ veitir frá ZO·ON á.
Skráningin felst í tveimur skrefum. Fyrra skrefið er að skrá grunnupplýsingar en í síðara skrefinu eru skráðar ítarlegri upplýsingar. Eftir að þú hefur skráð grunnupplýsingar færð þú sendann tölvupóst með hlekk til að ljúka seinna skrefinu. Til þess að skráningin þín sé fullgild þarf að ljúka við seinna skrefið með því að fara inná hlekkinn og skrá umbeðnar upplýsingar.
Það er betra að vera tímalega í að skrá sig sem sjálfboðaliða þar sem rafrænni skráningu lýkur 21. febrúar.
Allar upplýsingar um Smáþjóðaleikana 2015 er að finna á heimasíðu Smáþjóðaleika 2015 og á fésbókarsíðu Smáþjóðaleika 2015.