Lokahóf akademíunnar og 3. flokks

Sameiginlegt lokahóf Handknattleiksakademíu og 3. flokks Selfoss fór fram um miðjan maí. Þetta var að vanda skemmtileg samkoma, sól á himni og í hjörtum og grillaðar veitingar í mannskapinn. Þó nokkur verðlaun voru veitt og níu nemendur útskrifaðir úr handboltaakademíunni. Í akademíunni eru sérstök verðlaun veitt fyrir afrek ársins, en þau verðlaun eru veitt fyrir tölfræðiafrek á tímabilinu. Einnig eru veitt verðlaun fyrir framfarir í lyftingum, bera þau verðlaun vitni um áræðni og vinnusemi og síðast en ekki síst er afreksmaður ársins útnefndur, en þau verðlaun eru veitt fyrir hugarfar og viðhorfs við æfingar og keppni.

 

 

3. flokkur karla
Framför og ástundun: Dagur Rafn Gíslason
Markakóngur: Hákon Garri Gestsson
Varnarmaður ársins: Dagbjartur Máni Björnsson

Leikmaður ársins: Jónas Karl Gunnlaugsson

 

3. flokkur kvenna
Framför og ástundun: Inga Dís Axelsdóttir
Markadrottning: Hulda Hrönn Bragadóttir
Varnarmaður ársins: Adela Eyrún Jóhannsdóttir

Leikmaður ársins: Hulda Hrönn Bragadóttir

 

 

Útskriftanemar handknattleiksakademíu Selfoss
Ísak Kristinn Jónsson
Daði Fannar Jónsson
Dagur Rafn Gíslason
Dagbjartur Máni Björnsson
Skarphéðinn Steinn Sveinsson
Jónas Karl Gunnlaugsson
Erla Margrét Gunnarsdóttir
Eva Dagmar Björgvinsdóttir
Ágústa Tanja Jóhannsdóttir
Á myndinni eru einnig Carlos Martin Santos og Örn Þrastarson sem stýrt hafa akademíunni í vetur
 

 

Handknattleiksakademía Selfoss
Lyftingabikarinn: Adela Eyrún Jóhannsdóttir
Afrek ársins: Ágústa Tanja Jóhannsdóttir
Afreksmaður ársins: Hulda Hrönn Bragadóttir