Umf. Selfoss HANDKNATTLEIKSDEILD UMF. SELFOSS Íþróttaskólinn Fyrir börn 2–4 ára Um skólann og æfingatíma

Leikur, gleði og hreyfing fyrir yngstu iðkendurna. Íþróttaskóli handknattleiksdeildar er fyrir börn 2–4 ára. Fjölbreytt stöðvaþjálfun og skemmtileg verkefni tryggja að eitthvað sé við allra hæfi.

  • Æfingar: Föstudaga kl. 15:15–16:00, einu sinni í viku.
  • Námskeið: 10 skipti. Tvö námskeið eru haldin á skólaárinu.
  • Foreldrar: Fylgja börnunum í gegnum tímann og taka þátt.

Haustnámskeið 2026: Hefst föstudaginn 18. september og lýkur föstudaginn 27. nóvember.

Enginn tími er í haustfríi leikskóla. Dagsetningar geta færst um 1–2 vikur ef húsið er leigt út vegna viðburða eða annars.

Skráning í Íþróttaskólann