11.06.2015
Grýlupottahlaup Frjálsíþróttadeildarinnar fór fram í 48. skipti í apríl og maí. Hlaupið í ár tókst vel og fjöldi þátttakenda eykst á hverju ári.
11.06.2015
Aldursflokkamót HSK í sundi var haldið á Hvolsvelli 30. maí sl. Fjögur félög af svæðinu sendu keppendur til leiks.Besta afrek mótsins vann Kári Valgeirsson úr Umf.
11.06.2015
Eins og undanfarin ár verður Handboltaskóli Selfoss starfræktur í íþróttahúsi Vallaskóla í tvær vikur strax að loknum skólaslitum eða 15.-19.
10.06.2015
Leikskrá fyrir leik Selfoss og Fram í 1. deildinni er tilbúin.
10.06.2015
Handknattleiksdeild Selfoss hefur ráðið Stefán Árnason sem þjálfara meistaraflokks karla í handknattleik.Stefán er Selfyssingum að góðu kunnur, hann þjálfaði hér á árunum 2009-2013 áður en hann fór til Vestmannaeyja þar sem hann þjálfaði í tvö ár.Á Selfossi hefur Stefán náð sínum besta árangri, lið undir hans stjórn hafa unnið fjóra Íslandsmeistartitla og tvo bikarmeistaratitla, auk þess sem hann vann Partille Cup með liði Selfoss.Stefán er að fara að þjálfa meistaraflokk í fyrsta sinn.
10.06.2015
Opnað hefur verið fyrir sem verður haldið á Blönduósi dagana 26.-28. júní.Allir sem eru 50 ára og eldri geta tekið þátt í keppnisgreinum á mótinu, hvort sem þeir eru í félagi eða ekki.
10.06.2015
Stelpurnar okkar unnu sanngjarnan 3-1 sigur á Val á útivelli í Pepsi-deildinni í gær.Áhorfendur voru enn að tínast í stúkuna þegar Guðmunda Brynja þrumaði boltanum í slánna og inn eftir sendingu frá Donnu Kay Henry.
10.06.2015
Smáþjóðaleikunum, sem fram fóru á Íslandi, lauk laugardaginn 6. júní. Eins og áður hefur komið fram áttu Selfyssingar tvo keppendur á mótinu.Þór Davíðsson nældi sér í bronsið í í júdó.
09.06.2015
Stjórn Ungmennafélags Íslands auglýsti í lok apríl eftir umsóknum frá sambandsaðilum UMFÍ um að taka að sér undirbúning og framkvæmd 7.
09.06.2015
Vormót ÍR var haldið á Laugardalsvelli í rigningu og roki þann 8. júní sl. Þær Fjóla Signý Hannesdóttir og Thelma Björk Einarsdóttir létu það ekki á sig fá heldur mættu galvaskar og uppskáru gott mót.Fjóla Signý sigraði í þremur greinum, 100 m grindahlaupi á tímanum 16,86 sekúndum í miklum mótvindi, 400 m grindahlaupi á tímanum 67,53 sekúndum og að lokum náði hún að stökkva yfir 1,66 m í hástökki þrátt fyrir að hafa ekki keppt í hástökki um langan tíma.Thelma Björk Einarsdóttir hjó nærri 34 ára gömlu Selfossmeti Elínar Gunnarsdóttur (37,28 m) er hún kastaði kringlunni 36,73 m, bætti sig um tæpa tvo metra og hafnaði í öðru sæti.Frábær byrjun á sumrinu hjá þessum öflugu íþróttakonum.