Þriðja umferð Íslandsmótsins í motocross

Ásta Petrea Hannesdóttir
Ásta Petrea Hannesdóttir

Þriðja umferð Íslandsmótsins í motocross fór fram 20.júlí á vegum KKA á Akureyri. Rúmlega 75 keppendur tóku þátt. Aðstæður til keppni voru með besta móti, það ringdi aðeins í byrjun dags þannig fullkomið rakastig hélst í brautinni yfir daginn.

Iðkenndur og fèlagsmenn UMFS voru 5 og náðu 3 þeirra á pall, í flokknum MX1 varð Alexander Adam Kuc í öðru sæti, í flokknum MX2 sigraði Eric Máni Guðmundsson og í kvennaflokk varð Ásta Petrea Hannesdóttir í öðru sæti, Annel Adamsson keppti í unglingaflokk og heldur hann áfram að bæta sig í hverri keppni. Frábær árangur hjá þessa unga íþróttafólki.

Fjórða umferð Íslandsmótsins fer svo fram þann 10. ágúst á nýju svæði UMFS í Bolaöldum. 

(Myndir: Sverrir Jónsson - Motosport.is)