Þrír Íslandsmeistaratitlar á Selfoss

Fjóla Signý Hannesdóttir varð Íslandsmeistari í fimmtarþraut kvenna
Fjóla Signý Hannesdóttir varð Íslandsmeistari í fimmtarþraut kvenna

Meistaramót Íslands i fjölþrautum fór fram í Reykjavík helgina 11.og 12. febrúar sl. Fjórir  frjálsíþróttamenn frá Frjálsiþróttadeild Selfoss tóku þátt og stóðu sig mjög vel.

Fjóla Signý Hannesdóttir reimaði á sig keppnisskónna eftir langa fjarveru.  Hún gerði sér lítið fyrir og varð Íslandsmeisari í  fimmtarþraut kvenna með 2740 stig. Frammistaða hennar er Íslandsmet í flokki 35-39 ára kvenna  og tími hennar í 60m grindahlaupi er einnig Íslandsmet í hennar aldursflokki. Árangur hennar varð eftirfarandi: 60m grind 9,93 sek - hástökk 1,48m - langstökk 4,62m - kúluvarp 9,18m- 800m hlaup 2:48,30 mín

Hjálmar Vilhelm Rúnarsson keppti í sjöþraut í flokki 16 -17 ára og varð Íslandsmeistari með miklum yfirburðum.  Árangur hans í þrautinni varð eftirfarandi:

60m hlaup 7,58 sek - 1000m hlaup 3:03,21 mín - 60m grind 8,96 sek - hástökk 188m - langstökk 6,12m - stangarstökk 2,800m - kúluvarp 14,38m.

Anna Metta Óskarsdóttir varð Íslandsmeistari í fimmtarþraut 15 ára merð 3041 stig.   Árangur hennar var eftirtalinn:
 - 60m grind 9,53 sek - hástökk 1,54m - langstökk 5,18m - kúluvarp 8,67m- 800m hlaup 2:44,60 mín

Frábær árangur hjá þessum efnilegu frjálsíþróttamönnum.

 

Hjálmar Vilhelm varð Íslandsmeistari í sjöþraut 16-17 ára pilta. Helgi Reynisson æfingafélagi Hjálmars varð í öðru sæti en hann keppir fyrir Þjótanda.

Anna Metta (hægra megin á myndinni) varð Íslandsmeistari í fimmtarþraut 15 ára stúlkna. Helga Fjóla Erlendsdóttir (vinstra megin)  Garpi sem er æfingafélagi Önnu Mettu varð Íslandsmeistari í fimmtarþraut í flokki 16-17 ára stúlkn