08.01.2016
Í gær fór Egill Blöndal ásamt fimm öðrum íslenskum júdómönnum til Austurríkis í OTC (Olympic Trainings Camp) æfingabúðirnar í og mun æfa þar næstu fimm daga tvisvar á dag ásamt mörgum bestu júdómönnum heims en þetta eru öflugustu æfingabúðirnar ár hvert á vegum EJU.Þátttaka okkar manna er meðal annars undirbúningur þeirra fyrir sem haldið verður 23.
08.01.2016
Síðasta frjálsíþróttamót liðins árs var haldið á Selfossi 28. desember sl. og nefndist Áramótamót Selfoss. Sagt var frá þessu á .Á mótinu voru sett nokkur HSK met og skemmtilegt að segja frá því að mæðgur settu HSK met á mótinu.
07.01.2016
Kvennalið Selfoss hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi átök í Olís-deild kvenna í handknattleik því landsliðskonan Steinunn Hansdóttir hefur samið við félagið.Steinunn gekk í raðir SønderjyskE frá Skandeborg síðasta sumar.
07.01.2016
Æfingar hjá Umf. Selfoss eru hafnar að nýju eftir frí um áramótin. Flestir flokkar hjá félaginu voru í fríi yfir hátíðarnar en það eru margir af eldri hópunum sem una sér vart hvíldar þrátt fyrir jólasteik og áramót.
07.01.2016
Unnur Dóra Bergsdóttir leikmaður Selfoss í knattspyrnu var valin landsliðsæfingar U17 kvenna sem fram fara 8. - 10. janúar 2016. Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöll undir stjórn Freys Alexanderssonar landsliðsþjálfara U17 kvenna.
07.01.2016
Það var mikið um dýrðir í Silfurbergi í Hörpu 30. desenber sl. þegar Eygló Ósk Gústafsdóttir sundkona var útnefnd íþróttamaður ársins 2015 af Samtökum íþróttafréttamanna.
06.01.2016
Ákveðið hefur verið að fresta þrettándagleði á Selfossi fram að helgi. Veðrið hefur ekki unnið með okkur eins og vonast var til og því var þessi ákvörðun tekin.Sem fyrr hvetjum við fólk til að fylgjast með tilkynningum um nýja tímasetningu á heimasíðu og .
06.01.2016
Öðruvísi æfing var haldin hjá yngsta frjálsíþróttafólkinu í jólamánuðinum. Stillt var upp í Tarzan-leik og öllum að óvörum mættu nokkrir jólasveinar úr Ingólfsfjalli í Tarzanleikinn og tóku allir vel á því.
06.01.2016
Þriðjudaginn 5. janúar 2016 var haldið júdómót HSK í flokki fullorðinna. Mótið var haldið í íþróttasalnum í gamla Sandvíkurskólanum.
05.01.2016
Ný námskeið í hefjast fimmtudaginn 14. janúar og föstudaginn 15. janúar.Eftirfarandi hópar eru í boði:
- Ungbarnasund fyrir 0-2 ára
- Barnasund fyrir 2-4 ára
- Sundnámskeið fyrir 4-6 ára
- Sundskóli fyrir börn fædd 2010 og eldriSkráning á og í síma 848-1626Guðbjörg H.