Bílverk BÁ endurnýjar samning við fimleikadeildina

Árni og Andrea við undirritun samnings
Árni og Andrea við undirritun samnings

Bílverk BÁ og fimleikadeild Selfoss hafa endurnýjað samstarfssamning sinn, en yfir tíu ár eru síðan að Bílverk hóf að styðja við starf deildarinnar.

Það er fimleikadeildinni mjög mikilvægt að hafa góða samstarfsaðila sem styðja við okkar starf og erum við virkilega þakklát Bílverk fyrir stuðninginn í gegnum árin.
Bílverk BÁ er bílréttinga og sprautuverkstæði, rótgróið fyrirtæki á Selfossi sem þykir mikilvægt að styðja við íþróttastarf og samfélagið okkar.

Árni frá Bílverk BÁ kom niður í Baulu nú í nóvember og skrifaði undir samning ásamt Andreu formanni fimleikadeildarinnar. Stúlkurnar í 5. flokki stilltu sér upp á mynd með þeim við tilefnið :-)

Við þökkum Bílverk innilega fyrir stuðninginn og ánægjulegt samstarf í gegnum árin!