Brúarhlaup Selfoss 2017

Brúarhlaup2017_a4
Brúarhlaup2017_a4

Brúarhlaup Selfoss fer fram laugardaginn 12. ágúst í tengslum við bæjarhátíðina Sumar á Selfossi. Keppt er í 5 og 10 km hlaupi, 2,8 km skemmtiskokki og 800 metra Sprotahlaupi barna 8 ára og yngri. Auk þess er keppt í 5 km hjólreiðum.

Ræst verður af stað frá kl. 11:00 á laugardag.

Upplýsingar um tímasetningar og staðsetningu ræsingar

Skráning fer fram á vefsíðunni Hlaup.is og í Landsbankanum á Selfossi. Einnig á hlaupadag frá klukkan 9 í Landsbankanum. Forskráningu á vefnum lýkur klukkan 16:00 föstudaginn 11. ágúst.