Bryndís Embla og Ásta Kristín með gull á Gautaborgarleikunum

Bryndís Embla vann til gull- og silfurverðlauna auk þess að setja Íslandsmet
Bryndís Embla vann til gull- og silfurverðlauna auk þess að setja Íslandsmet

Keppendur Frjálsíþróttadeildar Selfoss stóðu sig frábærlega á Gautaborgarleikunum sem haldnir voru helgina 5.-7.júlí við íslenskar aðstæður, rigningu og rok. Tvenn gullverðlaun, ein silfurverðlaun og ein bronsverðlaun voru uppskeran ásamt Íslandsmeti og fullt af persónulegum bætingum. Þær Bryndís Embla Einarsdóttir og Ásta Kristín Ólafsdóttir náðu þeim frábæra árangri að vinna til gullverðlauna, sú fyrri í kúluvarpi en Ásta í spjótkasti auk þess sem Bryndís Embla setti Íslandsmet í kringlukasti.

13 ára flokkur: Ásta Kristín Ólafsdóttir sigraði glæsilega í spjótkasti á persónulegu meti þegar hún kastaði spjótinu 36,31m. Magnús Tryggvi Birgisson bætti sig vel í þrístökki þegar hann stökk 10,64m og hafnaði í 7.sæti og Birkir Aron Ársælsson kastaði spjótinu 31,35m og endaði í 8.sæti.

15 ára flokkur: Bryndís Embla Einarsdóttir bætti sig verulega í kúluvarpi og var rétt við HSK metið í flokki 15 ára þegar hún kastaði kúlunni 12,25m og sigraði. Hún vann til silfurverðlauna í spjótkasti þegar hún kastaði spjótinu 43,19m og var rétt rúmum metra frá gullverðlaunum, hún kórónaði síðan glæsta frammistöðuna með því að stórbæta sig í kringlukasti og setja Íslandsmet með 750gr kringlu er hún kastaði 38,12m og hafnaði í 4.sæti. Arndís Eva Vigfúsdóttir bætti sig í hástökki þegar hún vippaði sér yfir 1.52m og hafnaði í 6.sæti og auk þess kastaði hún kúlunni 10,70m og hafnaði í 9.sæti.

16-17 ára flokkur: Hjálmar Vilhelm Rúnarsson sýndi hversu fjölhæfur hann er og endaði framarlega í sínum greinum. Hann bætti sinn besta árangur í spjótkasti þegar hann kastaði spjótinu 57,77m og vann til bronsverðlauna. Í þrístökki bætti hann sinn besta árangur þegar hann stökk 13,62m og varð í 4.sæti og hann varð í 4.-5.sæti í 100m hlaupi á tímanum 11,49s og í kúluvarpi varð hann í 5.sæti en hann varpaði kúlunni 13,99m. Þorvaldur Gauti Hafsteinsson hljóp 800m á tímanum 1:58,80m og varð í 4.sæti og Vésteinn Loftsson kastaði kringlunni 48,32m og endaði í 7.sæti. Ísold Assa Guðmundsdóttir stökk til 4.sætis í hástökki þegar hún vippaðí sér yfir 1,56m og hún bætti sig í þrístökki þegar hún stökk 10,56m og varð í 8.sæti. Dagmar Sif Morthens stökk 1,38m í hástökki sem dugði í 9.sæti og Hugrún Birna Hjaltadóttir stökk 10,04m í þrístökki og endaði í 10.sæti.

18-19 ára flokkur: Daníel Breki Elvarsson kastaði spjótinu 51,76m og lenti í 6.sæti og Hanna Dóra Höskuldsdóttir bætti sig í hástökki þegar hún vippaði sér yfir 1,61m og varð í 8.sæti.

Ásta Kristín vann spjótkast í flokki 13 ára

Hjálmar Vilhelm vann til bronsverðlauna í spjótkasti 

Birkir Aron, Hróbjartur og Magnús Tryggvi stóðu sig vel í 13 ára flokki