Dagný Selfoss
Dagný Brynjarsdóttir, fyrrum leikmaður Selfoss, varð um helgina þýskur meistari í knattspyrnu með liði sínu FC Bayern München og er þetta er í fyrsta sinn sem íslensk kona verður þýskur meistari í knattspyrnu.
Dagný byrjaði á varamannabekknum í dag en kom inn í síðari hálfleik þegar um tíu mínútur voru til leiksloka. Þetta var síðasti leikur hennar fyrir félagið en hún heldur á ný mið í sumar.
Á vef Sunnlenska.is er nánar fjallað um lokaumferðina auk þess sem Dagný er tekin tali.
---
Ljósmynd: Sunnlenska.is/Guðmundur Karl