Síminn (1)
Í hádeginu var dregið í 8-liða úrslit í símabikar karla og kvenna. Bæði Selfoss liðin voru i dráttinum og fengu strákarnir ÍBV heima og stelpurnar gífurlega erfiðan leik gegn bikarmeisturum Val heima. Einnig var tilkynnt nýtt fyrirkomulag á bikarhelginni. En hér eftir verða undanúrslitin spiluð á föstudegi hjá körlunum, laugardegi hjá konunum og úrslitin spiluð á sunnudegi. Þetta fyrirkomulag er svipað og tíðkast í meistaradeildinni og þýska bikarnum svokölluð "final four" helgi.
Hjá konunum mætast:
ÍBV 2 - Fram
Selfoss - Valur
FH - ÍBV/Afturelding
Grótta - HK
Leikið verður 5./6. febrúar
Hjá körlunum mætast:
Akureyri - FH
Þróttur - Stjarnan
ÍR - Haukar
Selfoss - ÍBV
Leikið verður 10./11. febrúar