Egill Blöndal Ásbjörnsson, júdódeild Umf. Selfoss, var fyrir nokkru valinn efnilegasti júdómaður landsins af Júdósambandi Íslands. Egill, sem er aðeins 16 ára, náði frábærum árangri á árinu. Hann varð í öðru sæti í 15-16 ára flokki á Norðurlandamótinu og vann auk þess brons á Sweden Open International í haust. Egill hefur æft júdó í fjögur ár hjá júdódeild Selfoss. Fyrir einu og hálfu ári síðan var hann valinn í landsliðið og hefur síðan farið fimm sinnum í keppnisferðir erlendis. Í þessum fimm ferðum hefur hann fjórum sinnum unnið til verðlauna. Frábær viðurkenning á góðu starfi júdómanna á Selfossi.