Evrópumarkið
Á dögunum sendi Baldur Róbertsson hjá BR flutningum inn pistil í Dagskránna. Í þeim pistli gleðst Baldur yfir velgengni handboltaliðs Selfoss og lýsir því svo yfir að hann heiti á hér með á liðið að styrkja það um kr. 1.000 fyrir hvert mark sem það skorar í þriðju umferð Evrópukeppninnar. Einnig skorar Baldur á önnur fyrirtæki á Suðurlandi og á landsvísu að taka þátt í þessari áskorun.
Skráningarblöð eru sögð vera í boði hjá nokkrum fyrirtækjum og eins hægt að nálgast þau hjá handknattleiksdeildinni. Fyrirtæki sem taka þátt munu fá nafn sitt á sérstakan heiðursvegg í Hleðsluhöllinni auk þess að fá nafn sitt í handboltablaðið. Þá má koma skráningu og styrkjum á framfæri með tölvupósti á handbolti@umfs.is eða í síma 694 1721.
Handknattleiksdeildinn fagnar þessu framtaki með þakklæti í huga.
____________________________________
Mynd: Pistillinn sem Baldur sendi inn í Dagskránna.
Dagskráin / dfs.is