Partille Cup 2019
Yngra ár 4.flokks tók þátt í Partille Cup á dögunum en mótið er eitt stærsta og skemmtilegasta handboltamót heims og er haldið í Gautaborg í Svíþjóð ár hvert.
Selfoss sendi út tvö lið til keppni í u-15, eitt stráka- og eitt stelpu-lið. Stelpuliðið lenti í mjög sterkum riðli en stóðu sig engu að síður vel og enduðu í 4. sæti af sex liðum og fóru þá beint í 64 liða úrslit í B úrslitum. Þar stóðu þær sig mjög vel og unnu 64 liða úrslitin mjög öruggt. Þær fóru síðan í gegnum 32 liða úrslitin á mögnuðu gullmarki og töpuðu að lokum í 16 liða úrslitum með einu marki í hörkuleik og mikið svekkelsi. Liðið sló þær út fór svo alla leið í úrslitaleikinn.
Strákaliðið var í toppbaráttu í sínum riðli og hitti því miður ekki á sinn besta leik í lokaleik riðlakeppninnar og enduðu því í 3. sæti síns riðils, en fóru samt í A úrslit sem er flottur árangur. Þar sem þeir enduðu í 3. sæti þá þurftu þeir að fara í gegnum umspilsleik fyrir 64 liða úrslitin. Sá leikur var spilaður kl. 8 um morgun og okkar drengir voru ekki alveg vaknaðir og voru nokkrum mörkum undir í hálfleik. Þann mun náðu þeir ekki að brúa og voru því úr leik.
Hópurinn stóð sig mjög vel og þetta var skemmtileg ferð í alla staði. Áfram Selfoss!
Mynd: Ungir handboltaiðkendur stilla sér upp áður en haldið er af stað til Gautaborgar á eitt stærsta handboltamót heims.
Umf. Selfoss / SDH