Strákarnir í 2. flokki gerðu góða ferð í Hafnarfjörð í gær og unnu þar heimamenn í Haukum 29 - 26. Mest náðu okkar menn átta marka forustu og leiddu í hálfleik 13 - 10. Smá klaufaskapur í lok leiks varð til þess að heimamenn náðu að laga stöðuna aðeins. Síðuritara fannst Arnar þjálfari skamma leikmennina dálítið og mætti hann vera aðeins jákvæðari í þeirra garð. Vörn liðsins var afar sterk sem og markvarslan góð. Þá lék liðið góðan sóknarleik mestan hluta leiksins en smá hik kom á hann á köflum. Andri lék afar vel sem og Magnús. Þá voru Einar, Matthías og Sverrir sterkir. Það er afar gott að ná sigri á erfiðum útivelli gegn liði sem er skreytt atvinnumönnum en þrátt fyrir það vinna okkar menn örugglega. Nú er að halda áfram og gera sig klára fyrir leikinn í undanúrslitum í bikarnum. Sá leikur fer fram á Selfossi á þriðjudaginn kl. 19.00. Mætum öll!
Andri 10 mörk
Einar 7
Matthías 6
Magnús 5
Janus 1
Sverrir 20 varin skot