Iðkendasamningar við 1. flokk og meistaraflokk

iðkendur í 1. flokki og meistaraflokki á iðkendasamningu. Á myndina vantar Ásu Kristínu, Birtu Sif og Birnu Sólveigu.
iðkendur í 1. flokki og meistaraflokki á iðkendasamningu. Á myndina vantar Ásu Kristínu, Birtu Sif og Birnu Sólveigu.

Fimleikadeild Selfoss og iðkendur í meistaraflokki og 1. flokki hafa gert með sér iðkendasamninga fyrir veturinn 2024-2025.
Það er frábært fyrir deildina að hafa þessa metnaðarfullu iðkendur á samningi, en þeir eru miklar fyrirmyndir og deildin er virkilega stolt af þeim og því að geta boðið þeim á samning.
Iðkendurnir hittu framkvæmdastjóra og meðlimi úr stjórn í Baulu þar sem samningar voru undirritaðir.

Við hlökkum mikið til að fylgjast með þessum duglegu og hæfiileikaríku iðkendum í vetur.