Keppendur í flokki 11-15 ára.
Þrjá föstudaga í röð í desember þann 6.,13. og 20. var jólamót HSK haldið hjá júdódeildinni. Mótið er innanfélagsmót og fór fram í júdósalnum, sem er gamli Sandvíkursalurinn beint á móti Sundhöll Selfoss. Mótið markar lok haustannar hjá júdódeildinni.
Þann 6. desember keppti yngsti hópurinn 6-7 ára börn. Þar voru margir keppendur að taka þátt á sínu fyrsta móti og stóðu sig vel. Keppendur voru nítján talsins, strákar og stelpur. Gaman var að sjá hvað mikið af foreldrum, ömmum, öfum og systkynum mættu til að fylgjast með. Strákar í unglingaflokki fengu að spreyta sig í að dæma og aðstoða við mótið.
13. desember var komið að 8-10 ára krökkunum. Þar voru keppendur 22 talsins, strákar og stelpur. Þau hafa öll keppt áður og sáust glæsileg tilþrif, margar flottar glímur.
Það var svo 19. desember sem 11-15 ára hópurinn kláraði önnina sína með jólamótinu. Þar voru keppendur tíu talsins, strákar og stelpur. Í þessum flokki er blanda af krökkum sem hafa verið lengi og hafa mikla reynslu og einnig stelpur sem voru að keppa á sínu fyrsta móti og stóðu sig glæsilega.
Einar Ottó