Eva María - vefur
Í lok sumars voru haldin tvö innanfélagsmót hjá 14 ára og yngri til að gefa krökkunum kost á að bæta sinn árangur áður en innanhústímabilið byrjar.
Mótin gengu heldur betur vel þar sem átta HSK met féllu og fjögur Íslandsmet en keppt var í þrístökki og sleggjukasti á báðum mótunum. Í 11 ára flokkum er reyndar ekki talað um Íslandsmet en að ná í efsta sæti á afrekalista FRÍ er auðvitað sambærilegt.
Á fyrra mótinu voru slegin tvö HSK met og eitt Íslandsmet í sleggjukasti.
Hjalti Snær Helgason, 11 ára, kastaði sleggjunni (2 kg) 24,06 m og setti þar með HSK met í sínum flokki.
Vilhelm Freyr Steindórsson, 12 ára, var að keppa á sínu fyrsta móti og gerði sér lítið fyrir og setti bæði HSK og Íslandsmet þegar hann kastaði sleggjunni (3 kg) 25,35 m.
Á síðara mótinu féllu sex HSK met og þrjú Íslandsmet.
Benjamín Guðnason, 10 ára, bætti HSK met Hjalta Snæs í 11 ára flokki þegar hann kastaði sleggjunni (2 kg) 26,17 m. Þessi árangur skilar honum einnig í efsta sæti afrekalista Íslands í flokkum 10 og 11 ára.
Vilhelm Freyr Steindórsson, 12 ára, bætti eigið HSK og Íslandsmet frá fyrra mótinu um tæpa 5 metra þegar hann kastaði sleggjunni (3 kg) 30,05 m.
Elisa Rún Siggeirsdóttir, 14 ára, gerði sér lítið fyrir og bætti eigið HSK met í sleggjukasti (3 kg) um rúman metra og kastaði 29,04 m.
Eva María Baldursdóttir, 11 ára, skaust upp í toppsæti afrekalista Íslands í 11 ára flokknum í þrístökki þegar hún stökk 9,06 m og setti auðvitað um leið HSK met.
Aron Fannar Birgisson, 11 ára, bætti HSK metið í þrístökki í sínum flokki er hann stökk 8,88 m.
Kolbeinn Loftsson, 12 ára, setti einnig HSK met í þrístökki þegar hann stökk 10,27 m en hann átti einmitt metið í 11 ára flokknum.
Fullt af krökkum voru að bæta sinn persónulega árangur og of langt að telja það upp hér en glæsilegur árangur hjá krökkunum og framtíðin í frjálsum er greinilega mjög björt hjá Selfoss.
þi
---
Eva María á Landsmóti UMFÍ
Mynd: Umf. Selfoss/Svava Steingrímsdóttir