Katrín Ýr gegn Fylki vefur
Selfyssingar unnu öruggan útisigur á Fylki í Pepsi-deildinni í gær. Stelpurnar okkar voru allan tímann mun beinskeyttari en heimastúlkur og unnu fyllilega verðskuldaðan sigur.
Erna Guðjónsdóttir kom Selfyssingum yfir strax á 5. mínútu. Selfoss fékk fjölda færa til að bæta við mörkum í fyrri hálfleik en það var ekki fyrr en í upphafi seinni hálfleiks að Dagný Brynjarsdóttir bætti við öðru marki Selfoss. Áfram hélt sókn Selfyssinga en mörkin í leiknum urðu ekki fleiri.
Að loknum sjö leikjum er Selfoss í sjötta sæti Pepsi deildarinnar með 12 stig einungis einu stigi frá öðru sæti. Næsti leikur er gegn FH á JÁVERK-vellinum þriðjudaginn 8. júlí kl. 19:15.
Fjallað var um leikinn á vef Sunnlenska.is.
---
Katrín Ýr átti góðan leik í vörn Selfoss.
Mynd: Fótbolti.net/Einar Ásgeirsson