Guðmunda Brynja - vefur
Selfoss vann sanngjarnan sigur á Skagastelpum í gríðarlega erfiðum leik á Akranesi í Pepsi-deildinni í gær.
Skagaliðið spilaði þéttan varnarleik sem Selfyssingar áttu í mestu erfiðleikum með að brjóta á bak aftur og var staðan í hálfleik markalaus. Í upphafi síðari hálfleiks kom eina mark leiksins þegar fyrirliðinn Guðmunda Brynja Óladóttir skoraði af öryggi úr vítaspyrna sem réttilega var dæmd eftir að leikmaður ÍA fékk boltann í höndina eftir skot frá Gummu.
Sanngjarn en torsóttur sigur í höfn og Selfoss er í fjórða sæti deildarinnar að loknum 13 umferðum með 23 stig. Næsti leikur liðsins er á JÁVERK-vellinum á Selfossi þriðjudaginn 26. ágúst kl. 18:00.