Gengið hefur verið frá samkomulagi við tvo leikmenn sem kom til með að spila fyrir Selfoss í Pepsi-deildinni næsta sumar. Það eru bandaríski markvörðurinn Chanté Sandiford og Magdalena Anna Reimus, ung og efnileg knattspyrnukona frá Hetti á Egilsstöðum sem skrifaði undir tveggja ára samning.
Við bjóðum leikmennina velkomna í Selfoss og fögnum því að ungir og efnilegir íþróttamenn velji Selfoss.
Sjá nánari upplýsingar um Sandiford á vef Sunnlenska.is.
---
Magdalena (t.h.) ásamt Guðmundu Brynju fyrirliða Selfoss.
Mynd: Umf. Selfoss/Gunnar Borgþórsson