Pepsi-deildar logo3 2010 portrett blatt
Stelpurnar okkar mættu topliði Breiðabliks á útivelli í gær.
Það er óhætt að segja að spennan hafi verið í hámarki og mikið undir í leiknum. Úrslitin réðust á afar umdeildri vítaspyrnu sem féll heimakonum í skaut en að öðru leyti áttu okkar stelpur í fullu tré við topplið Pepsi-deildarinnar.
Nánar er fjallað um leikinn á vef Sunnlenska.is.
Eftir leikinn er Selfossliðið komið niður í 3. sætið með 15 stig eins og Stjarnan en Blikar eru á toppnum með 19 stig.
Næsti leikur stelpnanna er gegn KR á heimavellli mánudaginn 29. júní og hefst kl. 19:15.