Nú standa Smáþjóðaleikarnir yfir á Íslandi en þeir hófust 1. júní og lýkur laugardaginn 6. júní.
Selfyssingar eiga tvo keppendur á mótinu, Annars vegar Þór Davíðsson sem keppir í -100 kg flokki og sveitakeppni í júdó föstudaginn 5. og laugardaginn 6. júní.
Hins vegar er það Fjóla Signý Hannesdóttir sem keppir í 100 m grindahlaupi á morgun, fimmtudaginn 4. júní, kl. 16:40 á Laugardalsvelli.
Samtals eru fjórir keppendur í frjálsum af HSK svæðinu þ.e. Kristinn Þór Kristinnsson, Samhygð, í 800 m og 1500 m hlaupum, Styrmir Dan Steinunnarson, Þór Þorlákshöfn, í hástökki og Agnes Erlingsdóttir, Laugdælum, í 400 m grindahlaupi. Þá er rétt að geta þess að Ólafur Guðmundsson þjálfari hjá Umf. Selfoss verður flokksstjóri frjálsíþróttalandsliðsins á leikunum.
Hvetjum fólk til að fjölmenna á völlinn og hvetja okkar fólk.