Valdimar Örn framlengir

Valdimar Örn Ingvarsson hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Umf. Selfoss um tvö ár.

Valdimar Örn er tvítugur rétthentur afar fjölhæfur leikmaður. Hann hefur leikið í báðum hornum, hægri og vinstri skyttu. Á síðasta tímabili kom hann inn í meistaraflokk til að leysa hlutverk á línunni. Þrátt fyrir ungan aldur þá á Valdimar yfir 60 leiki með U-liðum Selfoss síðustu ár.

Það verður gaman að sjá þennan kraftmikla leikmann mæta í stórt hlutverk með liði Selfoss í Grill 66 deildinni í vetur.