IMG_4390
Minningarmótið um Magnús Arnar Garðarsson verður haldið í íþróttahúsi Vallaskóla sunnudaginn 3. maí. Minningarmótið er árlegur viðburður hjá deildinni og nota iðkendur mótið sem undirbúning fyrir síðasta mót vetrarins en það er í ár vormót FSÍ sem haldið verður á Egilsstöðum. Mótið á sunnudaginn er í tveimur hlutum sá fyrri hefst með innmars klukkan 11:35 og seinni hlutinn hefst með innmars klukkan 14:30. Á sunnudaginn keppa hópar sem heita HB og S. Eftir seinni hlutann á sunnudag verða viðurkenningar veittar til einstaklinga fyrir framfarir og ástundun og efnilegustu unglingarnir krýndir. Eins verður félagabikarinn afhentur. Það verður því líf og fjör í Vallaskóla á sunnudaginn. Í lok maí verður svo síðari hluti minningarmótsins en þá taka yngri börnin þátt allt frá öðrum bekk og niður.