Fimleikar - Viðurkenningar 2020
Fimmtudaginn 4. júní veitti fimleikadeild Selfoss viðurkenningar fyrir síðasta tímabil. Veitt voru sjö einstaklingsverðlaun auk viðurkenningar fyrir lið ársins.
Eftirfarandi hlutu verðlaun:
LIÐ ÁRSINS: KK eldri.
FIMLEIKAKONA ÁRSINS: Auður Helga Halldórsdóttir.
FIMLEIKAMAÐUR ÁRSINS: Bjarni Már Stefánsson.
FRAMFARIR OG ÁSTUNDUN KVK: Ása Kristín Jónsdóttir.
FRAMFARIR OG ÁSTUNDUN KK: Daníel Már Stefánsson.
EFNILEGASTI UNGLINGURINN KVK: Karolína Helga Jóhannsdóttir.
EFNILEGASTI UNGLINGURINN KK: Ævar Kári Eyþórsson.
FÉLAGI ÁRSINS: Sigurbjörg Hróbjartsdóttir.
Við óskum verðlaunahöfum innilega til hamingju.
Deildin er fjölmenn og ríkir ávallt mikil gleði og gaman í æfingasalnum í Baulu. Síðasta vika var sérlega lífleg og skemmtileg þegar fimleikadeildin var með vinaviku en þá máttu allir iðkendur deildarinnar bjóða vin/vinkonu með sér á æfingu. Tókst það einstaklega vel.
Sumaræfingar og sumarnámskeið hófust á mánudaginn og er hægt að skrá sig til leiks í gegnum Nóra á slóðinni selfoss.felog.is.
sóh
---
Á mynd með fréttinni eru í efri röð f.v. Auður Helga, Ása Kristín, Sigurbjörg Hróbjartsdóttir og Karolína Helga. Í neðri röð f.v. Ævar Kári, Daníel Már og Bjarni Már.
Á mynd fyrir neðan eru strákarnir í liði ársins.
Ljósmyndir: Umf. Selfoss.