36375584_10216846237976906_825987400034418688_o
Á síðustu misserum hafa yngri iðkendur knattspyrnudeildar tekið þátt í fjölda verkefna undir merkjum Selfoss. Yfir 50 strákar úr 7. flokki fóru á Norðurálsmótið á Akranesi og stóðu sig frábærlega í roki og rigningu.
5. flokkur kvenna og 6. flokkur karla ferðuðust til Vestmannaeyja og tóku þátt á Pæjumóti TM og Orkumótinu, bæði mjög stór mót fyrir þessa aldurshópa. 23 stelpur og 32 strákar fóru frá Selfossi og voru við með í landsliðs- og pressuleikjum í báðum mótum.
Á Selfossi var haldið Íslandsmót í 6. flokki kvenna, svokallað hnátumót þar sem okkar stelpur voru með fimm lið skráð til leiks og voru einhver liðin hársbreidd frá því að komast í úrslitakeppni mótsins.
3. flokkur karla og kvenna eru þessa stundina stödd í Barcelona á Spáni að taka þátt í árlegu móti, Barcelona Cup. Virkilega stórt og skemmtilegt mót sem fer fram við bestu aðstæður í frábæru veðri og hafa okkar lið staðið sig mjög vel það sem af er móti.
Framundan er N1 mót 5. flokks karla sem fer fram á Akureyri þar sem við erum að sjálfsögðu með fulltrúa eins og síðustu ár ásamt því að 5.-7. flokkar kvenna fara á Símamótið, langstærsta stelpumót ársins um miðjan júlí.
Virkilega gaman að fylgjast með öllum þessum krökkum ferðast um landið undir merkjum okkar félags og fá frábær verkefni við sitt hæfi.
Áfram Selfoss
![](/static/files/frettamyndir/ade0a19873a2efd97172bfd8993e9c9a.jpg)
![](/static/files/frettamyndir/59d272d56385a385c0c2586ad2b89edb.jpg)
![](/static/files/frettamyndir/fc58c1e2cd2c8f6aeada0d98390214ac.jpg)
![](/static/files/frettamyndir/99fc990b641e30db3938e611f887e905.jpg)
![](/static/files/frettamyndir/66c35b2ae54edf639d6d430f19f09c8c.jpg)
![](/static/files/frettamyndir/a074875f6087dadcfad3d64efb7b9596.jpg)
![](/static/files/frettamyndir/02aa0455e776173bfbc278b07eb17108.jpg)
![](/static/files/frettamyndir/632e3241f3453e5d85560a0b4d8ac953.jpg)