Á laugardaginn lauk Ragnarsmóti karla þetta árið. Að venju var leikið um öll sæti og einstaklingsviðurkenningar veittar.
Í fyrsta leik dagsins mættust Þór og Haukar U, sá leikur var allan tímann Þórs og lönduðu þeir að lokum stórum sigri, 38-21. Í bronsleiknum mættust Selfoss og Víkingur. Jafnt var á flestum tölum framan af en um miðjan hálfleikinn hlupu Selfyssingar fram úr og þeir hægðu lítið á sér í seinni hálfleik. Þar spilaði frammistaða markvarða Selfoss stórt hlutverk, en þeir voru með 27 varða bolta í leiknum. Leikurinn endaði með stórum sigri Selfyssinga 35-20.
Úrslitaleikurinn var stórgóður, en þar mættust ÍBV og Grótta. Eyjamenn tefldu fram ungu en stórskemmtilegu liði á Ragnarsmótinu í ár. Í fyrri hálfleik var allt í járnum og bæði lið með allt í botni, hálfleiksstaðan 18-19. Mikið skorað og samt voru markmenn liðanna að verja á fullu. Í seinni hálfleik mátti sjá að það var farið að minnka á bensíntanknum hjá ungu strákunum sem mikið var búið að mæða á. Gróttumenn sem voru í góðum gír á laugardaginn gengu á lagið og sigu fram úr eftir því sem leið á seinni hálfleikinn og uppskáru að lokum sigur 41-33 og þar með titilinn eftirsótta.
Markahæstu leikmenn mótsins voru þeir Elis Þór Aðalsteinsson (ÍBV) og Sölvi Svavarsson (Selfoss), báðir með 26 mörk. Andri Erlingsson (ÍBV) var þar í humátt á eftir með 25 mörk. Besti markmaður mótsins var Alexander Hrafnkelsson (Selfoss). Það voru nokkrir markmenn sem voru búnir að setja nafnið sitt í hattinn en Alexander tók þetta til sín eftir alvöru frammistöðu á laugardaginn þar sem hann varði 14 bolta í fyrri hálfleik og fékk á sig 9 mörk. Besti varnarmaðurinn var valinn Hannes Grimm (Grótta). Hannes var öflugur í vörninni hjá meisturunum og kórónaði frammistöðu sína þegar Vestmannaeyjaferjan strandaði á honum í úrslitaleiknum. Besti sóknarmaðurinn var valinn Andri Erlingsson (ÍBV). Alger prímusmótor í þessu ÍBV liði, skorandi hvaðan sem er af vellinum og dælandi boltum villt og galið. Verður gaman að sjá hvaða hlutverk hann mun fá hjá Eyjamönnum í vetur. Leikmaður mótsins var Ágúst Ingi Óskarsson (Grótta). Sóknarlega alger lykilmaður og öflugur í vörninni, fór á kostum í úrslitaleiknum.
Þar með er Ragnarsmóti karla lokið þetta árið, en þessu er þó hvergi nærri lokið. Á þriðjudaginn hefja konurnar leik á Ragnarsmóti kvenna. Þar munu ásamt Selfyssingum mæta FH, ÍBV og Víkingur.
1. Sæti Grótta
2. Sæti ÍBV
3. Sæti Selfoss
4. Sæti Víkingur
5. Sæti Þór
6. Sæti Haukar U
Besti markmaður
Alexander Hrafnkelsson - Selfoss
Markahæstur
Elís Þór Aðalsteinsson 26 mörk - ÍBV
Markahæstur
Sölvi Svavarsson 26 mörk - Selfoss
Besti varnarmaðurinn
Hannes Grimm - Grótta
Besti sóknarmaðurinn
Andri Eringsson - ÍBV
Leikmaður mótsins
Ágúst Ingi Óskarsson - Grótta
Ragnarsmótsmeistarar karla 2024
Grótta