IMG_4361
Íslandsmót unglinga í hópfimleikum hófst í kvöld með keppni í tveimur flokkum. Keppt var í eldri flokki drengja og 1.flokki stúlkna. Selfyssingar áttu eitt lið í hvorum flokki. Strákarnir stóðu sig mjög vel og nældu sér í silfurverðlaun með bætingu uppá 3 heila frá haustmóti. Það voru Stjörnustrákar sem sigruðu flokkinn og Stjarnan átti líka bronsliðið í flokknum. Í 1.flokki kvenna var spennandi keppni sex liða frá jafnmörgum félögum en lið Selfyssinga samsett úr fjórum flokkum í félaginu nældu sér í bronsið. Stúlkurnar sem eru á aldrinum 13 - 16 ára sýndu góð tilþrif á köflum en trampólínið var eitthvað að stríða þeim. Stelpurnar voru margar að keyra ný stökk og verða því reynslunni ríkari eftir mótið. enda ungar og efnilegar stúlkur hér á ferð. Lið Stjörnunnar í Garðabæ sigraði einnig þennan flokk og lið Gerplu varð í 2. sæti. Á morgun verður keppt í 4. og 3. flokki og eiga Selfyssingar 6 lið sem keppa í þessum flokkum á morgun. Hægt er að fylgjast með einkunnagjöf inná score.sporteventsystems.se

Selfossstúlkur í 1.flokki.

Selfossdrengir ásamt þjálfurum Margréti Lúðvigsdóttur og Mads Pind.