16.08.2013
Getraunastarfið hefst á nýjan leik um leið og enska úrvalsdeildin um helgina. Opið er í Tíbrá milli kl. 11 og 13 alla laugardaga í vetur.
16.08.2013
Það var Guðmunda Brynja Óladóttir sem skoraði bæði mörk Selfyssinga þegar liðið mætti Aftureldingu í Mosfellsbæ í gærkvöld.
15.08.2013
Á laugardaginn kemur heldur myndarlegur hópur fimleikastúlkna ásamt fimm þjálfurum til Cesenatico á Ítalíu í æfingabúðir. Hópar frá Selfossi hafa áður farið á þennan stað og látið vel af. Í Cesenatico er flott aðstaða til fimleikaiðkunar og koma hópar þangað alls staðar að úr Evrópu. Aðstaðan sem er bæði innan- og utandyra er öll til fyrirmyndar.
14.08.2013
Í sumar var fimleikadeildin með tvö sumarnámskeið fyrir börn 9 ára og yngri. Bæði námskeiðin voru vel sótt og heppnuðust vel. Æft var í íþróttahúsi Sunnulækjarskóla en lítið var hægt að vera úti vegna kulda og vosbúðar.
14.08.2013
Það voru mörg glæsitilþrif sem litu dagsins ljós í Meistaradeild Olís sem fram fór í níunda skipti á Selfossvelli um helgina. Þar voru mættir til leiks nærri 600 strákar frá 17 félögum í 5.
13.08.2013
Þriðja umferð Íslandsmótsins í mótokrossi fór fram sl. helgi við frábærar aðstæður hjá akstursíþróttafélaginu KKA á Akureyri.
13.08.2013
Unglingameistaramót Íslands í aldursflokkum 15 – 22 ára fór fram á Kópvogsvelli um liðna helgi. HSK/Selfoss sendi tólf keppendur til leiks sem stóðu sig frábærlega og höfnuðu í þriðja sæti í heildarstigakeppni félaga.
12.08.2013
Fjórir keppendur frá mótokrossdeild Umf. Selfoss tóku þátt í unglingalandsmótinu sem fram fór á Höfn í Hornafirði um verslunarmannhelgina.
12.08.2013
Selfyssingar urðu að játa sig sigraða þegar sameiginlegt lið BÍ og Bolungarvíkur kom í heimsókn í sólina á Selfoss sl. sunnudag.
09.08.2013
Tæplega 600 strákar eru mættir á Selfoss að taka þátt í Meistardeild Olís í knattspyrnu. Sjón er sögu ríkari og hvetjum við Selfyssinga til að kíkja á strákana sýna snilli sína á vellinum.Hægt er að fylgjast með gangi mótsins á .