Jordan Lee Edridge
Selfyssingurinn Guðjón Ágústsson og félagar hans í U-19 ára landsliði karla luku leik á Sparcassen Cup í Þýskalandi í gær. Liðið endaði í 7. sæti á mótinu eftir sigur á úrvalsliði Saar héraðs í lokaleik sínum á mótinu.
Liðið tapaði fyrir Tékkum, Hollendingum og Þjóðverjum í riðlakeppninni og gegn Póllandi í krossspili um sæti 5 til 8.
Guðjón og fleiri drengir fengu sín fyrstu tækifæri með landsliðinu á þessu móti og var frammistaðan upp á við allan tímann. Vonandi verður þetta til að auka breiddina í þessum aldurshópi í framtíðinni.
Nánar um mótið á vef HSÍ.