Tryggvi, Ísak og Hannes
Þeir Hannes Höskuldsson, Tryggvi Þórisson og Ísak Gústafsson hafa allir framlengt samninga sína við handknattleiksdeild Selfoss á síðustu misserum. Allir hafa þeir verið viðloðandi meistaraflokk í vetur.
Hannes Höskuldsson er 19 ára gamall vinstri hornamaður og hefur verið öflugur með U liði Selfoss í vetur ásamt því að vera í meistaraflokk.
Tryggvi Þórisson er 16 ára línumaður. Hann hefur spilað með 3. flokk, U-liði og meistaraflokk í vetur ásamt því að vera í U-17 ára landsliðinu.
Ísak Gústafsson er 15 ára örvhent skytta. Hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik í vetur gegn Stjörnunni ásamt því að spila með U-liðinu, 3. og 4.flokk. Þá hefur hann einnig keppt með U-17 ára landsliðinu í vetur.