Olísdeildin
Selfyssingar sóttu Gróttu heim í 21. umferð Olís-deildarinnar í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi. Niðurstaðan varð jafntefli, 29:29.
Fyrri hálfleikur var mjög jafn en Selfyssingar náðu tveggja marka forskoti undir lok hans og var staðan í leikhléi 15:13 þeim í vil. Í seinni hálfleik skiptust liðin á að hafa forystuna, munurinn varð aldrei meiri en eitt mark og niðurstaðan jafntefli í spennandi leik.
Nánar er fjallað um leikinn á Mbl.is.
Selfoss er eftir leikinn áfram í sjötta sæti deildarinnar með 18 stig þremur stigum frá fallsæti.