Coca cola bikarinn
Selfoss steinlá í kvöld á móti Stjörnunni, 34-21. Strákarnir eru því fallnir úr leik í Coca-Cola bikarnum í ár.
Stjarnan skoraði fyrstu tvö mörkin en Selfyssingar náðu að jafna í 3-3 og 4-4. Eftir það náðu heimamenn úr Garðabænum frumkvæðinu og við tók langur kafli þar sem ekkert gekk upp hjá Selfyssingum en flest skot Stjörnumanna enduðu í netinu. Staðan í hálfleik 16-8.
Seinni hálfleikur virtist ætla að fara af stað eins og sá fyrri endaði, en jafnvægi komst fljótlega á leikinn. Selfyssingar náðu nokkrum stoppum í vörninni og fengu nokkur mörk upp úr því. Það breytti því ekki að í hvert skipti sem Selfyssingar fengu tækifæri til að minnka muninn vildi boltinn ekki inn. Stórsigur Stjörnunnar staðreynd, 34-21.
Mörk Selfoss: Magnús Öder Einarsson 3, Daníel Karl Gunnarsson 3, Haukur Þrastarson 3/1, Alexander Már Egan 3, Atli Ævar Ingólfsson 2, Guðni Ingvarsson 2, Einar Sverrisson 2, Hannes Höskuldsson 1, Hergeir Grímsson 1, Guðjón Baldur Ómarsson 1.
Varin skot: Alexander Hrafnkelsson 6 (26%), Einar Baldvin Baldvinsson 3 (16%)
Nánar er fjallað um leikinn á Sunnlennska.is
Næsti leikur stákanna er á laugardaginn gegn KA fyrir norðan. Við hvetjum alla Selfyssinga til að bruna norður, en spáin er góð fyrir helgina. Stelpurnar eiga svo leik gegn Fjölni á sunnudaginn í Dalhúsum kl. 16:00, Selfyssingar fjölmenna líka í Grafarvoginn.