39585428_1256318594520791_81135196396584960_o
Stelpurnar töpuðu gegn Val í Hleðsluhöllinni í Olísdeild kvenna í kvöld, 30-17.
Í upphafi leiks gekk báðum liðum illa að skora og voru markmennirnir frábærir, eftir 5 mínútna leik var staðan 0-1 fyrir Val. Eftir það voru Valsstúlkur fyrri til að finna taktinn og náðu forustu sem þær fóru svo með inn í hálfleik, 7-14. Selfoss byrjaði seinni hálfleikinn mun betur en þann fyrri og náðu að minnka muninn í 11-15. Gestirnir höfðu lítinn húmor fyrir því og settu allt á fullt og keyrðu yfir okkar stelpur, staðan 12-27 með 22 mínútur á klukkunni og leikurinn í raun búinn. Eins og fyrr segir endaði leikurinn svo 30-17.
Staða Selfoss er óbreytt eftir þessa umferð, liðið er sem fyrr á botni deildarinnar með 4 stig. Þrem stigum fyrir ofan er HK. Markmiðið núna hlýtur að vera að ná upp fyrir þær og komast í umspil um sæti í Olísdeildinni næsta vetur. Fjórar umferðir eru eftir og nóg af stigum í boði.
Mörk Selfoss: Ída Bjarklind Magnúsdóttir 4, Perla Ruth Albertsdóttir 3, Sarah Boye 3, Hulda Dís Þrastardóttir 3, Kristrún Steinþórsdóttir 2, Sólveig Erla Oddsdóttir 1, Harpa Sólveig Brynjarsdóttir 1.
Varin skot: Katrín Ósk Magnúsdóttir 7 (26%), Þórdís Erla Gunnarsdóttir 2 (40%).
Nánar er fjallað um leikinn á Sunnlenska.is. Leikskýrslu má sjá hér.
Næsti leikur er á föstudaginn þegar strákarnir taka á móti FH. Það er svo smá pása hjá stelpunum, en þær fara í Safamýrina þar sem þær munu etja kappi við Fram á þriðjudagskvöldið 12. mars.
____________________________________
Mynd: Ída Bjarklind var markahæst með 4 mörk.
Umf. Selfoss / JÁE