Selfoss_merki_nytt
Fimleikadeild Ungmennafélags Selfoss leitar að framkvæmdastjóra í 75% starfshlutfall. Starfið er krefjandi, skemmtilegt og fjölbreytt. Hjá deildinni er öflugt barna-, unglinga- og afreksstarf, auk þess sem rekin er fimleikaakademía við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Hjá deildinni starfar sterkt teymi þjálfara, deildarstjóra, iðkenda og sjálfboðaliða.
Helstu starfssvið:
- Ábyrgð á daglegum rekstri og fjárhagslegu skipulagi deildarinnar
- Samskipti við foreldra, þjálfara og fimleikahreyfinguna
- Starfsmannastjórnun
- Mótun stefnu deildarinnar í samráði við deildarstjóra og yfirþjálfara
- Skipulag viðburða, markaðsmál, kynningar og styrksumsóknir
- Samskipti við sveitarfélagið og önnur félög innan íþróttahreyfingarinnar, styrktaraðila og fjölmiðla.
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er æskileg
- Þekking og reynsla af rekstrarstjórnun og fjárhagsáætlanagerð
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar
- Að vera skipulagður, lausnamiðaður, með leiðtogahæfileika og gott frumkvæði
- Áhugi á íþróttum
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 2. janúar. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Garðarsdóttir, formaður stjórnar Fimleikadeildar Umf. Selfoss í síma 895-5767. Umsókn ásamt ferilskrá sendist fyrir 31. október á inga@arborg.is.