fimleikar-eurogym-2016
Átta ungmenni frá fimleikadeild Selfoss keppa með landsliðum Íslands á Evrópumeistaramótinu í hópfimleikum sem haldið verður í Maribor í Slóveníu í næstu viku.
Þetta er gríðarlega góður árangur fyrir fimleikadeild Umf Selfoss og sýnir hversu öflug deildin er.
Úrtökuæfingar fyrir landsliðin byrjuðu í febrúar en frá því í vor hafa ungmennin lagt nótt við dag og æft 5-6 sinnum í viku eða um 20 tíma á viku til að vera sem best undirbúin fyrir mótið.
Ungmennin standa sjálf straum af miklum kostnaði vegna verkefnisins eða um 400 þúsund krónur á hvert þeirra. Fimleikasamband Íslands hefur opnað símastyrktarlínu fyrir einstaklinga sem sjá sér fært að styðja við fimleikafólkið okkar.
Þeir sem vilja styðja þau geta hringt í eftirtalin númer og þá færist ákveðin upphæð á símreikninginn:
905-2011 = 1.500 kr.
905-2012 = 3.000 kr.
905-2013 = 5.000 kr.
Einnig hefur fjáröflunarverkefni verið sett af stað undir merkjum Vertu mEMm en þar skora fyrirtæki hvert á annað að styðja við bakið á landsliðunum.
---
Efri röð: Margrét Lúðvígsdóttir - blandað lið, Eysteinn Máni Oddsson - blandað lið, Konráð Oddgeir Jóhannsson - blandað lið, Rikharð Atli Oddsson - blandað lið og Eva Grímsdóttir - kvennalið. Neðri röð: Júlíana Hjaltadóttir - stúlknalið, Hekla Björt Birkisdóttir - blandað lið unglinga og Aníta Sól Tyrfingsdóttir - stúlknalið.