Domusnova handboltaeignir
Handknattleiksdeild Umf Selfoss og fasteignasalan Domusnova hafa gert með sér samstarfssamning um svokallaðar Handboltaeignir Selfoss.
Stuðningsmenn í söluhugleiðingum geta því farið með sína fasteign til sölumanna Domusnova á Selfossi. Handknattleiksdeildin fær fasta greiðslu fyrir hverja selda fasteign sem fer í kaupsamning og því frábært tækifæri fyrir stuðningsmenn í söluhugleiðingum að styrkja handknattleiksdeildina um leið.
Nánari upplýsingar veita sölumenn Domusnova á Selfossi.
Áfram Selfoss
Mynd: Atli Kristinsson og Óskar Már Alfreðsson skrifa undir samstarfssamning á leik Selfoss og ÍR
Mynd: Umf Selfoss/JÁE