Fimleikar_Eysteinn Máni
Evrópumótið í hópfimleikum verður haldið á Íslandi dagana 15. - 18. október. Níu þátttakendur uppaldir hjá Fimleikadeild Selfoss munu keppa með landsliðum Íslands í mismunandi flokkum. Mótið er einstakur viðburður í íþróttasögu Íslendinga en það verður sett með glæsilegri opnunarhátíð miðvikudaginn 15. október klukkan 17:00 í Frjálsíþrótthöllinni í Laugardal.
Við hitum upp fyrir mótið með viðtölum við landsliðsfólk Selfyssinga sem birtast hér á vef Umf. Selfoss á hverjum degi fram að móti.
Fyrstur í röðinni er Eysteinn Máni Oddsson sem keppir með blönduðu liði unglinga.
Eysteinn Máni er fæddur 1998 og eru foreldrar hans Þóra Þórarinsdóttir og Oddur Þorbergur Hermannsson.
Helsta fyrirmynd í fimleikum: Niclas Butén og Mads Pind.
Uppáhalds morgunmatur: Beikon og egg.
Hvað hugsar þú áður en þú hleypur af stað í tvöfalt strekkt á dýnu? Ef ég hugsa eitthvað þá er það að horfa í fiberinn í take-offinu.
Markmið á EM: Að liðinu gangi sem best og ná sem bestum úrslitum.
Efirminnilegasta fimleikamótið: Klárlega NM 2014 með blönduðu liði Selfoss.
Við óskum Eysteini Mána góðs gengis á Evrópumótinu.
Við hvetjum ykkur að sjálfsögðu að næla ykkur í miða á Midi.is og veita afreksíþróttamönnum okkar stuðning beint í æð með því að mæta í Laugardalinn og styðja landsliðin okkar.
ÁFRAM ÍSLAND!