Fimleikar_Konráð Oddgeir
Evrópumótið í hópfimleikum verður haldið á Íslandi dagana 15. - 18. október. Níu þátttakendur uppaldir hjá Fimleikadeild Selfoss munu keppa með landsliðum Íslands í mismunandi flokkum. Mótið er einstakur viðburður í íþróttasögu Íslendinga en það verður sett með glæsilegri opnunarhátíð miðvikudaginn 15. október klukkan 17:00 í Frjálsíþrótthöllinni í Laugardal.
Við hitum upp fyrir mótið með viðtölum við landsliðsfólk Selfyssinga sem birtast hér á vef Umf. Selfoss á hverjum degi fram að móti.
Þriðji í röðinni er Konráð Oddgeir Jóhannsson sem keppir með blönduðu liði unglinga.
Konráð Oddgeir er fæddur 1998 og eru foreldrar hans Jóhann Helgi Konráðsson og Steinunn Húbertina Eggertsdóttir.
Fyrirmynd: Niclas Buten og Mads Pind.
Hvenær vissir þú að landsliðið var eitthvað sem þig langaði að stefna að? Þegar ég fór á fyrstu úrtaksæfinguna sá ég að ég átti möguleika, þannig að ég reyndi mitt besta til að komast í liðið og það tókst.
Uppáhaldsmatur: Beikonvafðar kjúklingabringur með fyllingu og sætum kartöflum.
Markmið á EM: Mín markmið eru að lenda öll stökkin mín, klúðra engu í dansinum og að liðið komist á verðlaunapall.
Eftirminnilegasta fimleikamótið: Það mun vera þegar við í Selfoss mix náðum 3. sæti á Norðurlandameistaramótinu núna í vor.
Helsta afrek í fimleikum: Að komast í landslið Íslands.
Við óskum Konráð Oddgeir góðs gengis á Evrópumótinu.
Við hvetjum ykkur að sjálfsögðu að næla ykkur í miða á Midi.is og veita afreksíþróttamönnum okkar stuðning beint í æð með því að mæta í Laugardalinn og styðja landsliðin okkar.
ÁFRAM ÍSLAND!
Fyrri kynningar:
Eysteinn Máni Oddsson
Alma Rún Baldursdóttir