Hanna heiðruð
Hrafnhildi Hönnu var færð viðurkenning frá Handknattleiksdeild Selfoss í síðustu viku. Þessi frábæri íþróttamaður og fyrirmynd hefur spilað með A-landsliði Íslands nú í vetur ásamt því að vera markahæsti leikmaður Olís deildar kvenna með 159 mörk í deildinni.
Stjórn deildarinnar óskar Hönnu innilega til hamingju með frábæran árangur og er stolt af því að hafa svo glæsilegan fulltrúa innan sinna raða.
Mynd: Hrafnhildur Hanna með viðurkenningu frá Handknattleiksdeildinni fyrir frábæran árangur í vetur. /Jóhannes Ásgeir Eiríksson