Kaffi Krús 2019
Handknattleiksdeild Selfoss og Kaffi Krús skrifuðu á dögunum undir áframhaldandi samstarfssamning. Vinir okkar á Kaffi Krús hafa verið stoltir bakhjarlar handboltans á Selfossi um nokkurt skeið og verða það áfram.
Handknattleiksdeildin er með til sölu 10 þúsund kr. gjafabréf á Kaffi Krús og rennur öll innkoma til deildarinnar. Þetta er því tilvalin leið til að styrkja handknattleiksdeildina og njóta ljúffengra veitinga á sama tíma. Gjafabréfin eru til sölu á öllum heimaleikjum Selfoss.
Einar Sindri Ólafsson varaformaður deildarinnar, Tómas Þóroddsson rekstrarstjóri á Kaffi Krús og Hergeir Grímsson fyrirliði meistaraflokks karla.
Umf. Selfoss / ÁÞG