Patrekur Þór framlengir

Patrekur Þór Guðmundsson Öfjörð hefur samið við handknattleiksdeild Umf. Selfoss til tveggja ára.

 

Patrekur er kvikur vinstri hornamaður uppalinn á Selfoss. Patrekur var hluti af skemmtikröftunum í U-liði Selfoss síðasta vetur og endaði markahæsti leikmaður liðsins með 97 mörk í 18 leikjum. Í vor útskrifaðist hann svo úr Handknattleiksakademíu Selfoss.

 

Það er gaman að fá að fylgja Patreki áfram upp tröppurnar og sjá hann sem og liðið allt takast á við Grill 66 deildina í vetur.