Perla Rut og Sigurður Fannar íþróttafólk Umf. Selfoss – Gunnar sæmdur gullmerki

(F.v.) Helgi S. Haraldsson, formaður Umf. Selfoss, Sigurður Fannar, Perla Rut og Gunnar.
Ljósmynd: Umf. Selfoss/Gissur Jónsson
(F.v.) Helgi S. Haraldsson, formaður Umf. Selfoss, Sigurður Fannar, Perla Rut og Gunnar.
Ljósmynd: Umf. Selfoss/Gissur Jónsson

Handknattleikskonan Perla Rut Albertsdóttir og júdómaðurinn Sigurður Fannar Hjaltason hafa verið valin íþróttakona og íþróttakarl Umf. Selfoss árið 2024. Verðlaunin voru afhent á verðlaunahátíð Umf. Selfoss sem fram fór í félagsheimilinu Tíbrá í gær.

Perla Ruth var burðarás í liði Selfoss sem bar sigur úr býtum í Grill 66 deildinni á síðasta tímabili og tryggði sér sæti í Olísdeildinni. Hún hefur einnig verið fastamaður í íslenska landsliðinu á árinu og lék með því á Evrópumótinu í nóvember og desember.

Sigurður Fannar hampaði Íslandsmeistaratitli í +100 kg flokki á árinu auk þess sem hann tók gull á Haustmóti JSÍ og silfur á Vormóti JSÍ. Hann hefur með einbeitni og ástundun til margra ára uppskorið ríkulega árið 2024. Hann hefur lagt mikið á sig og veitir öðrum innan deildarinnar hvatningu til árangurs.

Sex karlar og sex konur voru tilnefnd í kjörinu af deildum ungmennafélagsins og tóku þau við viðurkenningum á verðlaunahátíðinni.

Ungmennafélag Selfoss óskar Perlu Rut og Sigurði Fannari hjartanlega til hamingju með kjörið.

Við sama tækifæri var Gunnar B. Guðmundsson sæmdur gullmerki Umf. Selfoss en hann vann um árabil afar óeigingjarnt starf fyrir félagið, m.a. sem formaður knattspyrnuráðs félagsins á sjöunda áratug síðustu aldar og þá var hann formaður handknattleiksdeildar á fyrra gullaldartímabili félagsins upp úr 1990.